02júlí
Jæja þá er loksins komið að þessu..
Ég fer á morgun til New York og verð þar næsta árið meira og minna. Svo ætla ég að sjálfsögðu að vera dugleg að ferðast um allt og kem heim á klakann á 90 daga fresti :) Svo að ekki örvænta kæru vinir... En ég get ekki líst því hvað ég á eftir að sakna ykkar mikið.. :( Allir bara að vera duglegir að skoða síðuna til að fá fréttir af mér og skoða myndir og svona og svo er e-mailið mitt kidda6y@hotmail.com fyrir þá sem ekki vita og vilja hafa samband ;)
Eftir að ég tók þessa ákvörðun fór ég rosa mikið að átta mig á hversu mikið ég elska landið mitt og hvað ég á mikið af góðum vinum... Já maður nefnilega sér oft ekki það sem er beint fyrir framan mann þangað til að maður fer svona í burtu, ég veit nú að ég er ekkert farin en ég er samt strax farin að finna fyrir þessu. En ég náði ekki að hitta alla og kveðja þar sem þetta var allt gert með svo litlum fyrirvara.. þið sem ég kvaddi ekki verðið bara að fyrirgefa mér :( Mér langaði svo að hitta alla en það var bara ekki nægur tími..
En þið öll... viljiði í Guðs bænum fara vel með ykkur og vera dugleg að hafa samband og það geri ég líka :) Flugvélin fer ekki fyrr en 17 á morgun svo að ég bjalla í ykkur eða þig í mig.. ég verð nefnilega bara ein að ráfa um frá 14-17 svo að ég hefði mjög gaman af spjalli :)
En ég ætla að taka fullt af myndum hérna út til að koma öllum nýju myndunum fyrir... ég nenni eilla ekki að gera nýja síðu..
En góða nótt sofiði rótt og endilega hugsiði til mín í fluginu á morgun.. er nebbla sjúklega flughrædd
adios Iceland ;*
Kidda